HJALTASTAÐIR - Hlaupabolur RVK maraþon 2026
HJALTASTAÐIR - Hlaupabolur RVK maraþon 2026
Verð
4.995 ISK
Verð
Verð
4.995 ISK
Verð
per
Couldn't load pickup availability
Uppýsingar af síðu rmi.is þar sem hægt er að heita á hlaupahópinn:
Hjaltastaðir – Frá sorg til sögu um von, tilgang og tilheyrslu Hjaltastaðir er þróunarverkefni á sviði geðheilbrigðis- og stuðningsmála sem spratt upp úr sárri reynslu og miklu neyðarkalli í íslensku samfélagi. Verkefnið er stofnað í minningu Hjalta Snæs, sem tók sitt eigið líf í mars 2025, aðeins 23 ára að aldri. Hjalti var á einhverfurófi og glímdi við geðrof síðustu tvö æviárin sín. Síðustu vikurnar í lífi hans voru fullar af von – hann sýndi ótrúlegan vilja til að komast aftur út í lífið, finna sér hlutverk og tilheyra samfélaginu. En á ögurstundu brást kerfið honum; þegar hann kallaði skýrt eftir hjálp á endurhæfingarstöðinni þar sem hann bjó, var ekki hlustað. Saga Hjalta Snæs er því miður ekki einstök. Allt of mörg ungmenni upplifa sig í dag eins og púslið sem passar hvergi inn. Þau falla á milli kerfa, mæta lokuðum dyrum eða stimplum sem skilgreina þau út frá greiningum frekar en styrkleikum. Við verðum að bregðast við áður en það verður of seint – við höfum misst of marga í blóma lífsins.
Með Hjaltastöðum viljum við byggja upp öruggt og nærandi samfélag þar sem ungt fólk fær tækifæri til að blómstra á eigin forsendum. Hugmyndafræðin byggir á því að horfa framhjá greiningum og einblína þess í stað á manneskjuna og styrkleika hennar.
Hlaupum saman fyrir samfélag þar sem öll fá að tilheyra!


CRAFT
Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við okkur
fyrirspurn@newwave.is