Skip to product information
1 of 2

VINIR ÚLFARS - Hlaupabolur RVK maraþon 2026

VINIR ÚLFARS - Hlaupabolur RVK maraþon 2026

Verð 5.995 ISK
Verð Verð 5.995 ISK
TILBOÐ Uppselt
Stærð

Uppýsingar af síðu rmi.is þar sem hægt er að heita á hlaupahópinn:

Hlaupum fyrir Úlfar ❤️

Úlfar Baldvin er sex ára Dalvíkingur, kærleiksbjörn sem er dýrkaður og dáður af öllum sem hann þekkja. Fyrr á þessu ári greindist hann með óskurðtækt heilaæxli og hefur síðan þá barist af ótrúlegu hugrekki í ströngum meðferðum í Svíþjóð.

Vinir og velunnarar Úlfars, ætlum að hlaupa honum til heiðurs og um leið styðja starfsemi Börn með krabbamein, sem veitir börnum og fjölskyldum þeirra mikilvægan stuðning á erfiðum tímum.

Með hverju skrefi viljum við sýna Úlfari og öllum þeim börnum sem glíma við krabbamein að þau standa ekki ein. Við hlaupum fyrir hugrekkið, vonina og kærleikann.

Ef þú vilt leggja málefninu lið geturðu styrkt söfnunina eða gengið til liðs við okkur.

Áfram Úlfar! 💙

 

View full details

CRAFT

Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við okkur

fyrirspurn@newwave.is